Opinn fundur í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd miðvikudaginn 23. nóvember
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis heldur opinn fund miðvikudaginn 23. nóvember í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8–10. Fundurinn hefst kl. 9:45 og stendur til 11:00.
Fundarefnið er skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka.
Gestir fundarins verða Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra, Haraldur Steinþórsson lögfræðingur og Sigurður H. Helgason skrifstofustjóri frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.
Fundurinn verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.
Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis.
Að loknum fundi má nálgast upptöku af fundinum hér.
Fundurinn verður haldinn samkvæmt X. kafla reglna um starfsreglur fastanefnda Alþingis.